VELKOMIN Á SÍÐUNA MÍNA!!

Þessi vefsíða er hluti af útskriftarverkefni mínu við Listaháskóla Íslands og tengist bókverki um snjallsíma- og samfélagsmiðlanotkun ólíkra kynslóða.

Verkefnið skoðar hvernig þessi tækni hefur breytt daglegu lífi okkar, hegðun og samskiptum.

Ég er að safna stuttum svörum frá fólki á ólíkum aldri um þeirra upplifun af snjalltækjum og samfélagsmiðlum. Hugmyndin er að safna litlum örsögum um hvernig fólk lifir með þessari tækni í dag.

Svörin eru nafnlaus. Það eina sem ég bið um er fæðingarár svo hægt sé að sjá hvernig upplifun kynslóða er ólík.

Þú mátt svara stutt eða langt - þitt er valið!

Spurningar
hvaða ár fæddist þú?
manstu eftir því þegar snjallsímar komu fyrst inn í líf þitt?
Hvenær var það og hvernig upplifðir þú þá breytingu?
hvaða samfélagsmiðla notar þú í dag? og hvenær byrjaðir þú að nota þá?
hvenær skráðir þú þig fyrst á samfélagsmiðil, og hvaða?
Hér er átt við allt frá IRC, Myspace, Facebook, Snapchat, TikTok o.s.frv. Endilega segðu mér aðeins frá þinni hefðbundinni notkun á þeim miðil.
hvernig myndir þú lýsa sambandi þínu við snjallsímann í dag?
finnst þér samfélagsmiðlar hafa gefið þér meira eða tekið meira?
Hér er átt við t.d. tíma, athygli eða samskipti.
finnst þér notkun samfélagsmiðla geta orðið ávanabindandi?
Ef já, hvernig birtist það í þínu lífi?
hvenær finnur þú helst fyrir því að síminn hafi áhrif á þitt daglega líf?
ef þú gætir breytt einu í sambandi okkar við snjallsíma og samfélagsmiðla, hvað væri það?
ef þú veist það: hversu miklum tíma eyðir þú um það bil á dag í símanum?
Hér er átt við screentime, sem er hægt að athuga í settings í öllum snjallsímum.
hvenær finnst þér þú vera mest til staðar í lífinu?
Er það þegar þú ert í símanum, eða þegar hann er úr augsýn?
hvernig myndir þú lýsa daglegri notkun þinni á snjallsímanum?
Er hann fyrst og fremst vinnu- eða verkfæri, afþreyingartæki eða einfaldlega sími?
finnst þér snjallsíminn vera val eða nauðsyn í daglegu lífi?
takk fyrir þátttökuna!
Með því að senda inn svör gefur þú leyfi til að þau verði notuð (nafnlaust) í bókverki sem er hluti af lokaverkefni við Listaháskóla Íslands.

Verkið verður til sýnis á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands í Listasafni Reykjavíkur dagana 9.–25. maí.

Takk fyrir þátttökuna. — Ísak